200!

Já, þú ert að lesa tvöhundruðustu færslu mína hér á járnfrúnni góðu. Ekki er annað við hæfi þar sem árinu fer senn að ljúka og nýtt að hefjast, að þá hefjist ný bloggtíð. Vil ég tileinka þessa færslu árinu 2008 sem er búið að vera alveg frábært ár. Gjöriði svo vel, hér er annáll!

Janúar:
Nýju ári var fagnað bæði í fjölskylduboði heima hjá pabba og á heimili móður minnar niðri í bæ á meðan hún var í Sviss, kom þar saman mitt nánasta fólk og við drukkum inn nýja árið, fórum niður í bæ og ég endaði bara með æskuvini einum og þrítugum endurskoðanda að spila trivial pursuit þar sem ég sigraði með nokkrum yfirburðum, endurskoðandanum til mikils ama. Janúar var svo ekkert merkilegur mánuður. Auglýsingin "GEYMSLUR" Tröllreið landanum og mér einnig, enda ógleymanlegt framtak!

Ólafur Fokking Magnússon var "kjörinn" borgarstjóri og Heath Ledger lét lífið á afar dularfullan hátt og bjuggum við skólafélagarnir til memorial vegg í skólanum honum til heiðurs þegar við höfðum ekkert að gera í eyðu... já og Bobby Fischer líka, hann fékk samt bara eina mynd...

Minnir að einhver hafi klárað prentkvótann sinn með þessu verkefni, en já, moving on.

Febrúar:
Í byrjun febrúar byrjaði ég að vinna sem aðstoðarþjálfari á Dale Carnegie námskeiði ásamt hinum frábæru Sirrý, Tinnu, Baldri og Þórði. Það var líka ógeðslega kalt í Febrúar, ég datt í ruslafötu þegar ég var í snúsnú, sýningin BIRDCAGE var frumsýnd og ég held alveg örugglega að ég hafi farið á árshátíð. Já ég er nokkuð viss um það.

Þessi árshátíð var ooof kynþokkafull.. og ég sjúklega tönuð

Mars:
Kötturinn minn Eríka átti við blöðruvandamál að stríða en nú hefur hún náð sér að fullu, ég átti erfitt með að drulla mér í ræktina (og hef ekki enn náð mér að fullu), líf mitt snérist að mestu í kring um svefn, ég sólbrann í Árbæjarlauginni, páskafríið var yndislegt, ég spáði kreppu í gríni (sem kom svo, dularfullt, ha?), dansaði í Merzedes Club myndbandi og eitthvað (mér var samt sagt að ég ætti að koma og leika í símaauglýsingu en það var bara misskilningur), leitaði að vinnu og fleira

Apríl:
U
pplifði verulegt aðgerðarleysi, skrifaði um skinku, lærði stíft undir próf, skrifaði ritgerðir, gerði stuttmynd og já.. ferlega ómerkilegur mánuður í raun og veru

Maí:
Bensínmótmæli, ég fékk vinnu á Heilsuverndarstöðinni sem lifir enn í minningunni sem einn yndislegasti vinnustaður sem ég hef verið á, átti sögulegt Evróvisjönkvöld, hlakkaði mikið til Mexíkóferðar og svo gerðist bara ekki meir... hmm.... (vá hvað þetta er leiðinlegur annáll..).

Júní:
Ég svaf í nítján klukkutíma, fór í ástandið yfir eina helgi, fór einnig á versta deit ævi minnar, lærði að meta púsluspil upp á nýtt, týndist á Seltjarnarnesi, á sautjánda júní fórum ég og Hannah á Austurvöll með teppi, hvítvínsflöskur og nýbakaða pítsu, borðuðum, hlógum, kjöftuðum, hittum fólk og fengum kandíflos, seinna í mánuðinum fórum við á David Guetta, horfði vandræðalega mikið á "Girlfriends" á skjá einum, fékk semí-tan og fór á Sigur Rós og Björk

Júlí:
Vann meira á Heilsuverndarstöðinni, hékk mikið í Nauthólsvík í leit að tani, átti yndislegan afmælisdag, fékk nýja tölvu, hékk lygilega mikið á kaffibarnum, ákvað að fara til Tyrklands í stað Mexíkó og tók til í herberginu mínu!

Ágúst:
Fór til Akureyrar með nánustu vinum um verslunarmannahelgina þar sem við héldum einnig upp á afmæli Katrínar, fór til helvítis Tyrklands þar sem ég lenti í fleiri ævintýrum en mig hefði órað fyrir og barðist við þráláta matareitrun, kom heim, hætti að vinna á Heilsuverndarstöðinni og byrjaði í fjarnámi

September:
Fór á mitt allra seinasta menntaskólaball, reyndi að læra, var múltíkúltí, reyndi að fara í ræktina, og byrjaði að vinna á dagheimili fyrir alzheimersjúklinga. Hannah flutti í nýja íbúð og ég hékk vandræðalega mikið þar..

Október:
KREPPAKREPPAKREPPA, söng "She works hard for the money" á tælenskum karókíbar, lenti í mega vandræðum með strætókort, upplifði verstu túrverki ævi minnar, fékk hlutverk "mama" í skólasöngleikmnum Chicago, djammaði feitt með mömmu, týndi töskunni minni og fann hana aftur og fór í legendary afmælisveislu til Viktors, plús halloween partý.

Nóvember:
Kenndi þjóðinni að velja partítónlist, fékk heiftarlega veirusýkingu, fussaði og sveiaði yfir kreppuvæli, gerði jólagjafalista, keppti við MR í Morfís og vann.

Desember:
Hætti að vinna á dagheimilinu, MR kærði keppnina og tapaði, (aftur), ég kom loksins út úr skáppnum með ótta minn við blöðrur, ákvað að skipta yfir á listnámsbraut í skólanum eftir áramót, verslaði jólagjafir, fór á Bang Gang og Ratatat tónleika og átti yfir höfuð ógeðslega næs jólafrí, falleg jól og... GEÐVEIK ÁRAMÓT!

Gleðilegt ár!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband