29.12.2008 | 04:25
Frægðarsögur
Það byrjaði allt með því að ég sat algjörlega grunlaus á Rimini á Ítalíu að láta teikna mynd af mér
Þegar allt í einu gekk upp að mér forstjóri Elite model management og bauð mér samning, áður en ég vissi af var ég á forsíðu ítalska Vogue
Og brátt voru auglýsingaherferðirnar mínar á risastórum auglýsingaskiltum um allan heim!
Ekki leið á löngu áður en mér var boðið hlutverk í sjónvarpsþætti á HBO ásamt Hönnuh
Sá þáttur sló rækilega í gegn!
Ég varð innblástur fyrir marga listamenn, m.a. Andy Warhol
Partíaði villt og galið og komst á forsíður blaðanna fyrir ýmislegt!
Gaf út geisladisk sem virtist falla vel í kramið á öllum gagnrýnendum, og Paris Hilton!
Madonna gekk á tímabili ekki í öðrum bol en þessum.. svo þvoði hún hann heldur ekki því ég var búin að árita hann, frekar vandræðalegt...
Svo þúst, gekk ég á tunglinu og eitthvað
Sat á þingi í nokkur ár
Fékk andlitið mitt á seðil... þið vitið öll hvernig þetta er
Athugasemdir
þú ert snillingur
Hólmdís Hjartardóttir, 29.12.2008 kl. 11:29
Ef ekki væri fyrir allar þessar myndir af þér sem birtast hér og þar í heiminum myndi ég halda að þú hefðir ekkert að gera!
kv.
Mamma
kristin (IP-tala skráð) 29.12.2008 kl. 16:57
... Ég held að þú sért búin að eiga eitthvað við þessar myndir...
Viktor (IP-tala skráð) 5.1.2009 kl. 05:49
Þvættingur!
Hekla Elísabet Aðalsteinsdóttir, 5.1.2009 kl. 20:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.