Gúrkutíð

Ég er bara að koma við hérna til að segja ykkur það að ég hef ekkert að segja, nema það að næstu vikurnar á ég mér ekkert líf utan nördismans, Morfísvika gengur í garð á föstudaginn og frá og með þeim degi má enginn tala við mig nema liðsfélagar og þjálfari, nema einhver hafi dáið eða einhver sem ég þekki náið hafi sofið hjá einhverjum með kynsjúkdóm. Á fimmtudaginn er líka fyrsti samlestur á handriti Chicago, en á morgun held ég að verði myndataka fyrir auglýsinguna fyrir keppnina sem verður á föstudaginn í næstu viku, við Menntaskólann í Reykjavík. Keppnin verður haldin í Fjölbrautarskólanum í Garðabæ og vonast ég eftir stuðningi ykkar lesenda. Hún verður þau auglýst betur síðar.

Svo kemur desember, jólapróf og bull. En svo koma jól! Þá skal ég sko gefa ykkur almennilegt blogg.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband