26.10.2008 | 20:24
Setningar sem eru fyndnar þegar þær eru teknar úr samhengi.
"Og hvaða hommafífl er nú þetta?"
- Amma að horfa á How to look good naked
"Hvernig gekk þér samt að sturta niður?"
- Elna við Örnu þegar klósettið heima hjá Hönnuh var bilað
"Taktu buxurnar mínar af höfðinu þínu og lokaðu glugganum!"
- Viktor við mig þegar ég var með læti
"Geturu sett svartan eyeliner á rassinn á mér?"
- Hannah við Örnu þegar hún var með tyggjóklessu á svarta kjólnum sínum
"Hún dansar eins og engispretta á amfetamínsterum!"
- Þegar ég sá vandræðalega lélegan dansara á kaffibarnum
"Þessi er með lauk í eyrunum!"
- Gaur fyrir aftan Laufey á söngkeppni spottaði ansi furðulega eyrnalokka
"Það var líka gaman að dansa við alla þessa krabba sem voru berir að ofan"
- Hannah Hjördís skemmti sér með mér á hommabar í gær
Og talandi um hommabarinn, þar var ég rænd í gær. Töskunni minni var sumsé stolið en í henni voru öll kortin mín, kortið hennar Hönnuh, smápeningar, skartgripir, túrtappar (mjög verðmætir í augnablikinu), síminn minn, og allt snyrtidótið mitt sem er mjög dýrt og persónulegir munir sem ekki með nokkrum fjárupphæðum væri hægt að bæta fyrir. Mér þykir ólíklegt að þjófurinn sé að lesa þetta en ef svo er viltu vinsamlegast bræða íshjartað þitt í eitt augnablik eða nógu lengi til að skila mér töskunni. Ég skal lofa því að það verða engir frekari eftirmálar, ég vil bara fá dótið mitt til baka. Ég skal meira að segja borga einhvern pening fyrir það bara plís, skilaðu henni. Ef það er á dagskránni er hægt að ná í mig í síma 5541890.
Fyrir utan þetta leiðinlega atvik var mjög gaman um helgina!
Athugasemdir
hihihi hvernig gekk að sturta niður... klassískt
btw. elska harið þitt a fyrstu myndinni
Silja (IP-tala skráð) 27.10.2008 kl. 19:19
Jebb, enda varst þú listamaðurinn á bak við það
Hekla Elísabet Aðalsteinsdóttir, 27.10.2008 kl. 21:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.