25.10.2008 | 16:23
Ó, það böl að vera kona.
Splunkunýr túrtappapakki liggur ásamt stútfullum kassa af 400gr. íbúfen töflum á borðinu, á meðan tvær þeirra malla í maga stúlkunnar og reyna af öllu afli að halda sér þar. Stúlkan liggur í fósturstellingunni í rúminu og er sveitt á enninu. Hún er að reyna að átta sig á því hvort hún sé með malaríu, eða bara túrverki. Maginn er talsvert stærri en venjulega og brjóstin virðast hafa stækkað um fjórar stærðir síðan í gær. Blóðið sem er til sýnis í grey's anatomy sem spilast í tölvu stúlkunnar hjálpar lítið, því henni er að blæða út.
"NEI! ÉG MUN EKKI DEYJA Í DAG!" Hrópar stúlkan, sprettur á fætur, lætur renna í bað með freyðibombu og dass af ólívuolíu, fálmar eftir kókópöffsinu og hefur björgunaraðgerðir.
Ég skal láta ykkur vita hvort eitthvað af þessu virkaði seinna í kvöld.
Athugasemdir
Já þetta getur sjálfsagt verið draug fúlt
Res (IP-tala skráð) 25.10.2008 kl. 16:48
átt alla mína samúð.
Hólmdís Hjartardóttir, 25.10.2008 kl. 17:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.