Að vera fangi í eigin herbergi

Klukkan þrjú ákvað ég það að ég væri í einu allsherjar banni þar til ég kláraði jarðfræðiverkefnið mitt. Ég mætti ekki klæða mig, ekki fara á klósettið, ekki borða, ekki drekka, ekki horfa á sjónvarpsþátt eða hlusta á lag, hvað þá standa upp.

Tæpum þremur klukkustundum síðar ligg ég hér enn eins og skata að þorna upp, samt alveg að pissa á mig, hungurmorða með legusár, og rétt hálfnuð með helvítis verkefnið.

Farvel, grimma veröld.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sem sagt, á góðri leið með að breytast í athyglisverðan jarðveg?

mamma

kristin (IP-tala skráð) 21.9.2008 kl. 12:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband