6.3.2008 | 00:28
að fara í ræktina.
Í gær gerði ég svolítið sem ég er alls ekki vön að gera.
Ég fór neflinlega í ræktina.
Skemmst er að segja frá því að því verður varla neitað að ég er örlítið stærri en ég á að mér að vera og þegar ný ummerki þess fóru að láta sjá sig leist mér hreint ekki á blikuna svo ég dreif mig niður í baðhús með henni Söru minni, vopnuð vatnsbrúsa og converse skóm í felulitum, svo ég myndi nú örugglega ekki þekkjast. Við litum snögglega yfir stundaskrána og rákum augum í eitthvað sem heitir "body combat". Ég hafði ekki heyrt nema góða hluti af því svo við ákváðum að skella okkur og mættum upp í Dagnýjarsal með baráttuanda og kreppta hnefa. Korteri síðar var ég nær dauða en lífi. Þarna stóð einhver kona á palli, greinilega með eldflaug í rassgatinu kýlandi og öskrandi af lífs og sálar kröftum, bleik í framan og blaut af svita, og við áttum að gera eins og hún. Við þraukuðum þó út allan tímann, ótrúlegt en satt.
Eftir það ofmetnaðist ég svo mikið að ég gerði fimmhundruð magaæfingar og fimmhundruð rassalyftur, fór í einhver tæki og teygði á. Þetta tók um tvo og hálfan klukkutíma allt í allt. Ég taldi mig hafa teygt á öllum vöðvum og fór í rúmið með hreina samvisku.
Ekki aldeilis!
Ég er eins og spýtukarl. Ég þurfti að ýta sjálfri mér fram úr rúminu í morgun og ganga út eins og mörgæs. Þegar ég beygi mig er eins og bakið mitt sé að slitna og ef ég reyni að teygja úr fætinum stoppar hann þegar hann er komin í 90 gráður. Þið getið rétt ímyndað ykkur hvernig mér gekk að ganga niður tröppur í morgun. Ég gat varla haldið á hnífapörum. Mig langar að gráta en ég er með harðsperrur í tárakirtlunum. Mig langar að borða en mér er illt í herðablöðunum þegar ég tygg. Jæja, það er svosem ágætis megrun.
Hekla Elísabet - Líkamsræktarfrömuður
Athugasemdir
Iss!
Been there done that...
Bíddu bara þangað til þú þarft að pissa og kemst að því að þú getur hvorki lyft hendi, rennt frá, né neitt, en heldur ekki haldið í þér...
Bara ekki gefast upp! Þetta skánar! Láttu þig dreyma um daginn þegar þú getur tekið nornina sem stjórnar og flengt hana!
HT (IP-tala skráð) 6.3.2008 kl. 11:22
Vá! Þvílíkur dugnaður. Jerimías minn.
kv.
Mamma
kristín (IP-tala skráð) 6.3.2008 kl. 16:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.