3.3.2008 | 13:49
Taktu hár úr hala mínum og legðu það á jörðina.
Legg ég nú á og mæli um, að það verði að svo stóru vatni að engin kemst yfir nema fuglinn fljúgandi.
Kötturinn hóf byltingu í morgun og meig á hurðina mína. Núna kemst ég bara alls ekki yfir.
Hvernig á ég nú að komast fram og sinna öllum mikilvægu skyldum mínum?
Hasta la revolución, Eríka!
Athugasemdir
Náðu í stóra borinn hans afa þíns og boraðu gat á vegginn!
Eða skríddu út um gluggann.
Eða bíddu þangað til pabbi þinn kemur heim og getur lagt frakkann sinn yfir pollinn.
Eða...
Úps ætla nú ekki að fara að valda valkvíða...
HT (IP-tala skráð) 3.3.2008 kl. 14:23
Náðu í tusku og þrífðu þetta upp góða mín. Gerðu það fljótt og vel annars festist pissufýlan í gólfinu.
kv.
Mamma
kristín (IP-tala skráð) 3.3.2008 kl. 23:53
Yndislegur köttur... verst að hún meig ekki bara á þig, þá væriru frosin í sporunum.
Elísabet Kristjánsdóttir, 4.3.2008 kl. 11:43
Hahaha
Djöfull man maður eftir þessum myndum.
Fínn köttur.
Þorsteinn (IP-tala skráð) 4.3.2008 kl. 23:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.